Tilnefningar óskast fyrir útnefningu Listamanns Reykjanesbæjar

Erlingur Jónsson myndhöggvari er fyrsti Listamaður Reykjanesbæjar. Hann var útnefndur árið 1991.
Erlingur Jónsson myndhöggvari er fyrsti Listamaður Reykjanesbæjar. Hann var útnefndur árið 1991.

Listamaður Reykjanesbæjar er útnefndur fjórða hvert ár og nú er kominn tími til að útnefna nýjan. Verður það gert í 10. sinn í lok þessa kjörtímabils. Óskað er eftir rökstuddum tilnefningum frá bæjarbúum á netfangið menningarfulltrui@reykjanesbaer.is fyrir 1.mars n.k. 

Listamaður Reykjanesbæjar

Í lok hvers kjörtímabils er óskað eftir tillögum eða óskum um listamann Reykjanesbæjar. Allar listgreinar og öll listform koma til greina. Bæjarráð úthlutar nafnbótinni. Ráðið skal fara yfir þær óskir og tillögur sem fram koma. Einnig er heimilt að bæta við nöfnum sem til greina koma eftir því sem ástæða er til. Bæjarráði er heimilt að ráða sér aðstoðarfólk eftir þörfum vegna úthlutunar þessarar. Sá sem hlýtur nafnbótina Listamaður Reykjanesbæjar fær styrk til að auðvelda viðkomandi að stunda list sína, viðurkenningarspjald og grip til minningar um atburðinn. Þá verða nöfn þeirra skráð á stall listaverks sem stendur í skrúðgarði bæjarins. Listamanni Reykjanesbæjar er skylt að halda sýningu eða kynna á annan hátt list sína.

Þeir sem hafa verið útnefndir Listamaður Reykjanesbæjar eru:

  • 2014 Sigurður Sævarsson tónskáld
  • 2009 Ragnheiður Skúladóttir píanóleikari
  • 2005 Rúnar Júlíusson tónlistarmaður
  • 2001 Gunnar Eyjólfsson leikari
  • 1997 Sossa Björnsdóttir listmálari
  • 1994 Hilmar Jónsson rithöfundur
  • 1993 Halla Haraldsdóttir listmálari
  • 1992 Gunnar Þórðarson tónlistarmaður
  • 1991 Erlingur Jónsson myndhöggvari