Tónlistarskóli Reykjanesbæjar á Nótunni

Ungur píanónemandi
Ungur píanónemandi

Næst komandi sunnudag, þann 11. mars, verða haldnir svæðistónleikar „Nótunnar-uppskeruhátíðar tónlistarskóla“  fyrir Suðurnes, Suðurland og Kragann þ.e. höfuðborgarsvæðið umhverfis Reykjavík. Tónleikarnir verða í Salnum í Tónlistarhúsi Kópavogs. Alls verða haldnir þrennir tónleikar á grunnnámsstigi kl.11.30, á miðnámsstigi kl.13.00 og á miðnáms- og framhaldsnámsstigi kl.14.30.

Tónlistarskólinn sendir  3 glæsileg tónlistaratriði á svæðistónleikana sem valin voru af valnefnd skólans á tónleikum á Degi tónlistarskólanna laugardaginn 25. febrúar s.l.
Þau atriði sem taka þátt í svæðistónleikunum á sunnudaginn eru:

  • Forskóli 2 og Lúðrasveit með lagið "Blokklingarnir" eftir Michael Jón Clarke í útsetningu Inga Garðars Erlendssonar, kennara við skólann.; Þetta atriði verður á grunnnáms-tónleikunum kl.11.30
  • Hljómsveitin Tropic Thunder, sem er 9 manna blásara- og slagverkssveit,  með verkið "Astrocyte" eftir Sævar Bachmann Kjartansson, básúnu- og tónsmíðanema við skólann. Þetta atriði verður á miðnáms-tónleikunum kl. 13.00
  • Léttsveitin með lagið "It Had Better Be Tonight" eftir Henry Mancini,  sem m.a. er þekkt úr fyrstu leiknu myndinni um Bleika Pardusinn með Peter Sellers í aðalhlutverki. Þetta atriði verður einnig á miðnáms-tónleikunum kl. 13.00 og jafnframt lokaatriði tónleikanna.

Allir eru velkomnir og aðgangur er ókeypis.
Á svæðistónleikunum verður valnefnd á vegum yfirstjórnar Nótunnar sem velur alls 7 atriði af öllum þremur tónleikum dagsins til að taka þátt í lokatónleikum Nótunnar sem fara fram í Eldborg í Hörpu sunnudaginn 18. mars n.k.