Tvíburar fæðast í Landnámsdýragarðinum

Tvíburar Herkulesar og Freyju, þeir Magni og Móði.
Tvíburar Herkulesar og Freyju, þeir Magni og Móði.

Geiturnar Herkúles og Freyja eignuðust tvíburakiðlinga í Landnámsdýragarðinum í gær um hádegisbil. Fengu kiðlingarnir nöfnin Magni og Móði.  Móðir þeirra,geitin Freyja, er einnig fædd í Landnámsdýragarðinum árið 2010 og er undan Aþenu.

Freyja var ekkert á því að sýna það opinberlega þegar bræðurnir komu í heiminn því þrír stórir skólahópar voru nýfarnir úr dýragarðinum þegar hafurkiðin fæddust.

Nú eru átta dýrategundir til sýnis í garðinum sem er opinn alla daga frá kl. 10 til 17.