Umhverfisviðurkenningar veittar á Ljósanótt

Umhverfissvið veitti umhverfisviðurkenningar á Ljósanótt. Fjölmargar tilnefningar bárust en sviðið óskaði eftir ábendingum frá íbúum í sumar um góða hluti sem nágranni og fyrirtæki væru að gera í umhverfismálum. Allir verðlaunahafar fengu að launum gjafabréf hjá Gróðrarstöðinni Glitbrá.

Þessir hlutu umhverfisviðurkenningar:

Norðurgarður fékk viðurkenningu fyrir fallega götumynd þar sem nágrannar hjálpast að og eru samfélaginu góð fyrirmynd.

Veitingahúsið Ráin fékk viðurkenningu sem fyrirtæki til fyrirmyndar í umhirðu á nánasta umhverfi.

Borgarvegur 1 fékk viðurkenningu fyrir snyrtilegt umhverfi og starf í þágu íbúa.

Brekkustígur 31-f fékk viðurkenningu fyrir snyrtilegt umhverfi og starf í þágu bæjarbúa við gróðursetningu í steinamön.

Hafnargata 69 fékk viðurkenningu fyrir sérlega fallegan miðbæjargarð.

Ránarvellir 2 fengu viðurkenningu fyrir fallegan garð og eru til fyrirmyndar í umhirðu á nánasta umhverfi.

Heiðarhorn 1 fékk viðurkenningu fyrir fallegan og vel hirtan garð sem er alltaf til fyrirmyndar.

Aðalgata 17 fékk viðurkenningu fyrir ævintýralegan garð og snyrtilegt umhverfi.

Umhverfisviðurkenningar 2015_verðlaunahafar