Umsóknir fyrir nýja nemendur í Tónlistarskóla Reykjanesbæjar

Gítarnemendur í Tónlistarskóla Reykjanesbæjar spila á lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar. Ljósmyn…
Gítarnemendur í Tónlistarskóla Reykjanesbæjar spila á lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar. Ljósmynd: Sigurbjörg Róbertsdóttir

Opnað hefur við fyrir umsóknir nýrra nemenda um skólavist í Tónlistarskóla Reykjanesbæjar skólaárið 2018 til 2019. Umsóknarfrestur er ekki takmarkaður, en æskilegt er að umsóknir berist fyrir 1. júní nk. Tekið er inn í laus pláss skv. dagsetningum umsókna.

Hægt er að senda umsóknir rafrænt gegnum vef tónlistarskólans, tonlistarskoli.reykjanesbaer.is, undir hnappnum  „Nýjar umsóknir“.  Einnig er hægt að sækja um skriflega á umsóknareyðublöðum sem liggja frammi á skrifstofu skólans að Hjallavegi 2.

Með því að smella á þennan tengil opnast vefur Tónlistarskóla Reykjanesbæjar