Utanríkisráðherra Póllands heimsækir Reykjanesbæ

Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri Reykjanesbæjar og Jacek Czaputowicz utanríkisráðherra Póllands
Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri Reykjanesbæjar og Jacek Czaputowicz utanríkisráðherra Póllands

Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri og  Jacek Czaputowicz utanríkisráðherra Póllands hittust í Víkingaheimum á laugardag og ræddu málin. Ráðherrann, sem er kunnugur fjölda Pólverja á Suðurnesjum, sagði þá una hag sínum vel hér. 

Utanríkisráðherra Póllands var í opinberri heimsókn á Íslandi á föstudag og laugardag. Hann kom við í Víkingaheimum á leið heim á laugardag enda mjög áhugasamur um sögu Víkinga. Ásamt því að hitta bæjarstjóra Reykjanesbæjar fékk Jacek skoðunarferð um Víkingaheima í fylgd pólskumælandi starfsmanns safnsins.

Í samtali Kjartans Más og Jacek kom fram að það væri ósk stjórnvalda í Póllandi að pólsk börn og ungmenni, hvar sem þau væru niðurkomin í heiminum, ættu kost á góðri kennslu í móðurmálinu pólsku samhliða námi í tungumáli þess lands sem þau væru búsett í. Í okkar tilfelli er það íslenska.