Veður og gasdreifing

Gosstöðvar
Gosstöðvar

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra var með upplýsingafund þann 9. apríl  þar sem farið var yfir stöðu mála varðandi eldgosið á Reykjanesskaga. Þar var m.a. fjallað um loftgæði og gosstöðvarnar. Bæjarbúar eru hvattir til að horfa á fundinn.

Spá veðurvaktar um veður og gasdreifingu 21. apríl.

Sunnan 5-10 m/s og skýjað í dag og líkur á dálítilli vætu af og til. Hiti 2 til 6 stig. Vindur er suðvestlægari nokkur hundruð metra yfir jörð, og gasið leggur því líklega yfir höfuðborgarsvæðið fyrri part dags. Einnig eru líkur á að gas safnist fyrir í grennd við gosstöðvarnar í þetta hægum vindi.

Hægari sunnan- og suðaustanátt í kvöld og gasið ætti þá að leggja yfir Vatnsleysuströnd. Auk þess aukast líkurnar á gassöfnun við gosstöðvarnar.

Suðaustan 10-15 m/s og rigning eða súld og takmarkað skyggni á morgun. Gas mun leggja yfir byggð á norðvestanverðum Reykjanesskaga, en mengun ætti ekki að verða mikil á gosstöðvunum.

 

Fólk er hvatt til að fylgjast með loftgæðamælingum á loftgaedi.is og leiðbeiningum frá almannavörnum.

Heimsóknir á gossvæðið

Það er bannað að leggja ökutækjum á og við Suðurstrandarveg. Leggja skal bílum á skipulögðum stæðum neðan þjóðvegar. Frá miðnætti til hádegis eru engir viðbragðsaðilar á svæðinu til að mæla gasmengun og bregðast við óhöppum. Þeir sem ætla sér inn á svæðið fyrir hádegi þurfa að hafa þetta í huga. Gossvæðið er hættulegt og þá ekki síst vegna lélegra loftgæða. Gönguleiðin hefur reynst mörgum erfið. Lögregla getur án fyrirvara lokað fyrir alla umferð inn að gosstöðvunum. Hættusvæði við gosstöðvarnar hefur verið merkt inn á kort sem hægt er að nálgast á Facebook síðu lögreglunnar á Suðurnesjum.

Svæðið er ekki fyrir lítill börn, þau eru viðkvæm og nær jörðini en þeir sem eldri eru og því útsett fyrir skaðlegum lofttegundum. Þeir sem klæða sig ekki vel hafa ekkert inn á svæðið að gera.

  • Gasmengun við gosstöðvarnar getur alltaf farið yfir hættumörk, mökkurinn leggst undan vindi og því öruggast að horfa til eldstöðva með vindinn í bakið.
  • Í hægviðri (<5 m/s) getur gas safnast fyrir í dalnum, þá stjórnast vindafar af landslagi og gas getur verið yfir hættumörkum langt upp í hlíðar, allan hringinn í kringum gosstöðvarnar. Í slíkum tilfellum þurfa áhorfendur að færa sig upp á fjöll og hryggi en ekki halda sig í brekkunum fyrir ofan.
  • Velja þarf gönguleið eftir vindaspá hverju sinni
  • Forðast skal að taka hunda með sér að gosstöðvunum. Hundar eru útsettari fyrir mengun vegna gass þar sem þeir eru nær jörðu. Einnig getur flúor leynst í pollum sem hundar drekka úr.