Viðurkenning fyrir fallega garða

Verðlaunaafhending á fallegum degi í Reykjanesbæ
Verðlaunaafhending á fallegum degi í Reykjanesbæ

Skemmtileg hefð hefur skapast fyrir því að veita viðurkenningu þeim sem af stakri prýði sinna umhverfi sínu og þannig fegra bæinn.  Mikill tími og kostnaður getur farið í að sinna stórum heimagarði og margir sem sinna görðunum sínum vel og eru til fyrirmyndar.  Íbúar eiga þakkir skilið fyrir fjölda tilnefninga og fyrir löngu búið að sýna það og sanna að gróður vex vel og dafnar hér suður með sjó.

Viðurkenningar hlutu:

Hafnargata 42, fyrir vel uppgert eldra hús.
Eigendur:
Svavar Garðar Garðarsson
Guðlaug Björnsdóttir

Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, fyrir fallegan innri garð.
Eigandi:
Ríkissjóður Íslands

Borgarvegur 1, fyrir góða samþættingu á nýjum palli og eldri gróðri.
Eigendur:
Jónas Jóhannesson
Erla Hildur Jónsdóttir

Hraundalur 1, fyrir snyrtilegan og vel hirtan garð.
Eigendur:
Jón Gunnarsson
Guðrún Gunnarsdóttir

Freyjuvellir 6, fyrir vel hannaðan og fallegan garð.
Eigendur:
Þórunn Benediktsdóttir
Hannes Friðriksson

Heimavellir 13, fyrir góða samþættingu á villtri náttúru og fallegum heimagarði.
Eigendur:
Ásgeir Eiríksson
Ólöf Jónsdóttir

Langholt 4, fyrir fallegan yndisgarð.
Eigendur:
Örn Bergsteinsson