45.000 króna styrkur til barnafjölskyldna

Krakkar að leik
Krakkar að leik

Íslenska (english below)
Hægt er að sækja um styrk til Reykjanesbæjar vegna íþrótta- og tómstundastarfs barna. Hann er veittur vegna barna sem eru fædd á árunum 2005-2014 og búa á heimilum þar sem heildartekjur framfærenda, einstaklings, hjóna eða sambúðarfólks, voru að meðaltali lægri en 740.000 krónur á mánuði á tímabilinu mars – júlí 2020. Styrkurinn er 45.000 krónur fyrir hvert barn.

Það er einnig hægt að sækja um 40.000 króna Hvatagreiðslur vegna  barna á aldrinum 6 til 18 ára til niðurgreiðslu á viðurkenndu íþrótta,- tómstunda- og listgreinastarfi.

Það er svona einfalt að sækja um viðbótar íþrótta- og tómstundastyrk

  1. Þú skráir þig inn á Ísland.is með rafrænum skilríkjum og samþykkir að upplýsingar um tekjur séu sóttar til skattayfirvalda (RSK) svo hægt sé að staðfesta að heimilið falli undir tekjuviðmiðið. Athugið að sé um hjón/sambúðarfólk að ræða þurfa báðir aðilar að samþykkja.
  2. Ef þú færð svar um að þú eigir rétt á styrk ferðu sjálfkrafa inn á umsóknarsíðu um styrkinn.

Mikilvægar upplýsingar

  • Það er hægt að sækja um styrk til og með 15. apríl 2021
  • Miðað er við að íþrótta- og tómstundaiðkunin fari fram á skólaárinu 2020-2021.
  • Fyrirspurnum um styrkinn skal beint á reykjanesbaer@reykjanesbaer.is en einnig er hægt að hringja í þjónustuver Reykjanesbæjar í síma 421-6700 með fyrirspurnir og óska eftir aðstoð við að sækja um styrkinn.

sækja um styrk!

Barn sem er ekki í skipulögðu frístundastarfi

Ef barnið þitt er ekki í skipulögðu íþrótta-, tómstunda- eða æskulýðsstarfi þá hvetjum við þig til fara inn á Frístundavef Reykjaness og kynna þér það fjölbreytta barnastarf sem boðið er upp á. Allir með! verkefnið hefur látið útbúa myndbönd sem finna má inni á síðunni þar sem allt frístundastarf er kynnt.

Mikilvægt er að ganga frá skráningu í skipulagt íþrótta- og tómstundastarf og sækja um viðbótarstyrkinn fyrir 1. apríl2020.

 

English

45.000 KR. support for families

Now it is possible to apply for a grant regarding children’s participation in sports and leisure. This support is granted to the families of children born 2005-2014, living in homes where the average income of supporters, individuals, married or in a registered partnership, was lower than 740.000 ISK per month between March and July 2020.

The support is 45.000 KR. for each child.

It is this easy to apply for support:

  1. You register at Island.is with your electronic ID. There you confirm that you agree on information regarding your income from Tax authorities will be downloaded. Then it is possible to verify if the home of the specific child is under the income criteria. If a couple is sharing the household, both participants need to apply.
  2. If you get a reply that you are eligible for the grant, you are automatically transformed to the application page.

Important information

  • Applications can be submitted until April 15, 2021.
  • The support is granted for recreational activities in the school year of 2020-2021

Apply for support

Any questions regarding the support are answered at  reykjanesbaer@reykjanesbaer.is or  at the service center, tel: 421-6700.