Vinnuskólasumarið 2021

Ungmenni að störfum í vinnuskólanum.
Ungmenni að störfum í vinnuskólanum.

Nú fer að líða að sumri og flestir farnir að huga að skipulaginu sumarsins. Vinnuskólinn mun bjóða ungmennum á aldrinum 14-17 ára upp á vinnu en misjafnt er á milli árganga hvenær störf hefjast og hversu mikil vinna er í boði.

Nemendur vinnuskólans eru við störf frá mánudegi til fimmtudags og vinna ekki á föstudögum. 14 ára unglingar vinna til hádegis. Eldri nemendur vinna til klukkan 15:30 en fara í klukkustundarlangt matarhlé frá 11:30 til12:30.

Starfstímabil og vinnutími

Aldur Hefja störf Vinnutími Heildarfjöldi vinnustunda í sumar
14 ára (fædd 2007) 21. júní 08:30-11:30 = 3 klst. Allt að 60 klst.
15 ára (fædd 2006) 21. júní 08:30-15:30 = 6 klst. Allt að 120 klst.
16 ára (fædd 2005) 21. júní 08:30-15:30 = 6 klst. Allt að 120 klst.
17 ára (fædd 2004) 31. maí 08:30-15:30 = 6 klst. Allt að 204 klst.

 

Við erum mjög ánægð með að geta boðið ungmennum í Reykjanesbæ upp á vinnu góðan part af sumrinu en mikilvægt er að hafa í huga að vinnuskólinn er ekki skylda. Mikil verðmæti eru falin í því að forráðamenn geta tekið ungmenni með sér í sumarfrí, hvort sem er til að ferðast innanlands eða sinna áhugamálum. Þetta fyrirkomulag gefur einnig nemendum mun meira frelsi til þess að sinna sínum tómstundum svo sem íþróttaæfingum.

 

Sækja um í vinnuskóla Reykjanesbæjar