Opinn íbúafundur um skipulagstillögur

Reykjanesbær
Reykjanesbær

Opinn íbúafundur verður haldinn í Bíósal Duushúsa þann 9. júlí kl. 17:00-19:00. Farið verður yfir deiliskipulagsmál og kynning verður á tillögu um Keflavíkurtún - verndarsvæði í byggð. Á fundinum gefst íbúum kostur á að láta rödd sína heyrast og koma með tillögur um framtíðarásýnd gamla bæjarins og annarra svæða.  

Dagskrá: 

Deiliskipulagstillaga vegna Hlíðahverfis 
Nýtt hverfi með 408 íbúðum. Athugasemdafrestur framlengdur til 16. júlí. 

Dalshverfi II og III – deiliskipulag 
Nýtt hverfi með 300 íbúðum og breyting á skipulagsmörkum. 

Breyting á deiliskipulagi Hafnargötu 12 
Íbúðum er fækkað úr 58 í 40, heimilt verður að hluti bílastæða verði ofanjarðar en innan lóðar. 

Hreinsistöð við Ægisgötu - nýtt deiliskipulag 
Hreinsistöð við Ægisgötu. Nýtt kennileiti og útsýnisstaður. 

Kynning á tillögu varðandi Keflavíkurtún - verndarsvæði í byggð. 

Fylgiskjöl og nánari upplýsingar: