Umhverfisvaktin 13. - 19. apríl

Hér getur þú fylgst með framvindu framkvæmda í bænum og fengið nýjustu upplýsingar. Um lifandi gögn er að ræða sem breytast reglulega og gefa góða mynd af því sem er í gangi í bænum hverju sinni.

Malbikunarframkvæmdir við Keflavíkurhöfn og Olís

Á miðvikudaginn 15. apríl eru fyrirhugaðar malbikunarframkvæmdir við Keflavíkurhöfn, ef veður leyfir.

  • Fitjabakki verður lokaður frá kl. 09:00 til 12:00
  • Bakkastígur við Keflavíkurhöfn verður lokaður frá kl. 13:00 til 15:00

Vegfarendur eru beðnir um að sýna aðgát og virða merkingar og lokanir á meðan framkvæmdum stendur. Gera má ráð fyrir tímabundnum truflunum á umferð á svæðinu.

Við þökkum fyrir skilning og samstarf á meðan unnið er að framkvæmdunum.

Umhverfisvaktin verður uppfærð eins oft og unnt er yfir vikuna, en henni er deilt vikulega eða eins og nauðsynlegt er, hér á síðunni. Einnig er hægt að fylgjast með helstu framkvæmdum á vegum bæjarins á kortasjá Reykjanesbæjar.